Starfsafl fræðslusjóður og HRM hafa gert með sér samkomulag um samstarf til eflingar þekkingar og færni starfsfólks á félagasvæði Starfsafls. Fyrirtæki sem eiga aðild að Eflingu-stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis getur sótt um styrk til Starfsafls sem hluta af kostnaði við þarfagreiningar á sviði fræðslu- og mannauðsmála.
Viljayfirlýsing um samstarf Starfsafls fræðslusjóðs og HRM Rannsóknir og ráðgjöf
Starfsafl fræðslusjóður og HRM Rannsóknir og Ráðgjöf gera með sér svofellda viljayfirlýsingu:
Það er sameiginlegt markmið Starfsafls og HRM Rannsóknir og Ráðgjöf að auka alhliða og sértæka færni almennra starfsmanna í atvinnulífinu á höfuðborgarsvæðinu, félagssvæði Starfsafls.
Í því skyni munu Starfsafl og HRM auka samstarf sitt og kappkosta að bjóða fyrirtækjum, sem hafa almenna starfsmenn innan stéttarfélaga Starfafls, mannauðs- og símenntunarlausnir sem henta þörfum þeirra.
Starfsafl styrkir hluta af kostnaði við þarfagreiningar á sviði mannauðsmála, fræðslu og símenntunar innan fyrirtækja og að jafnaði um 75% af kostnaði við starfstengd námskeið, sem almennir starfsmenn fyrirtækisins sækja. Fyrirtæki utan Samtaka atvinnulífsins fá lægra styrkhlutfall.
HRM Rannsóknir og Ráðgjöf mun sjá um umsóknir til Starfsafls í þágu fyrirtækis en hver umsókn er metin sérstaklega af Starfsafli. Aðilar tryggja að styrkur Starfsafls muni nýtast að fullu við að lækka kostnað fyrirtækisins.
Reykjavík, 9. janúar 2009
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Starfsafl, starfsmennt Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri og ráðgjafi
HRM Rannsóknir og Ráðgjöf
| Næsta > |
|---|


